HLJÓM-2

Á vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu má finna upplýsingar um HLJÓM-2.

HLJÓM-2 er aldursbundin skimun sem er lögð fyrir til að meta hljóðkerfis- og málvitund barna í elsta árgangi leikskólans. Skimunin er framkvæmd í því skyni að greina þau börn sem eru í áhættu vegna lestrarerfiðleika þegar formlegt lestrarnám hefst. Slök hljóðkerfis- og málvitund er talin aðalorsök lestrarvanda hjá 88% barna (9 af hverjum 10 börnum). Undanfarna áratugi hefur mikil áhersla verið lögð á að börnum sé strax frá unga aldri boðið markvisst upp á leiki og verkefni til að örva hljóðkerfis- og málvitund þeirra og að þeim sem virðast eiga í erfiðleikum sé sinnt sérstaklega. Leikskólaárin eru því sérlega mikilvæg fyrir snemmtæka íhlutun.

Á haustmánuðum 2017 eignaðist þá Menntamálastofnun nú Miðstöð menntunar og skólaþjónustu matstækið HLJÓM-2. Í kjölfarið urðu ýmsar breytingar eins og þær að allt sem viðkemur HLJÓM-2 er leikskólum að kostnaðarlausu, afgreiðsla gagna fer fram með rafrænum hætti.

Innskráningargátt

Kynningarmyndband fyrir HLJÓM-2

Réttindanámskeið HLJÓM-2 á rafrænu formi

Fyrirspurnir má senda á hljom-2@mms.is