Sérsniðin ráðgjöf fyrir grunnskóla, leikskóla og frístundamiðstöðvar
Miðja máls og læsis býður öllum leik- og grunnskólum og frístundamiðstöðum upp á fræðslu og ráðgjöf varðandi mál og læsi. Fræðsluna er hægt að sníða að þörfum hvers og eins, s.s. stutt erindi, námskeið, fræðslufundi, vinnufundi og ráðgjöf með eftirfylgd.
Dæmi um námskeið og erindi sem Miðja máls og læsis býður upp á:
Bernskulæsi
Umræða um málþættina
- Þroskaþættir
- Gæðamálörvun
- Bein vinna með mál- og læsisþætti
Hvernig á að lesa fyrir börn
Samræðulestur
Námshugmyndir (orðaforði, frásagnir, samskipti, hlustun o.fl.)
Lýðheilsa.
Mál og læsi í frístund
Í daglegu starfi
Rýna í vikuáætlun
Læsi í víðum skilningi
Samræðulestur
Mál og læsi í grunnskóla
Lesfimi, umskráning, lesskilningur, hlustun, ritun, stafsetning, lestrarvandi, framsögn o.fl.
Læsi á yngsta- mið- eða unglingastigi
Læsi í víðum skilningi
Lestrarþjálfun og lesskilningur á mið- og unglingastigi
Leiðir í vinnu með mál og læsi
Kennsluhugmyndir
Læsi og umhverfi
Hvað gerir þú í stofunni þinni til að styðja við samskiptafærni í leik- og grunnskóla eða frístund?
Mál og læsi í leikskólabarna - fyrir aðstandendur
Fræðsla fyrir foreldra, forsjáraðila, ömmur og afa um málþroska og orðaforða. Að lesa er ekki bara að lesa.
Mál og læsi grunnskólabarna - fyrir aðstandendur
Fræðsla fyrir foreldra, ömmur og afa um málþorska og orðaforða.
Að láta lesa heima/heimalestur
Eflum bóklestur - bókasmakk
Leiðir til að kveikja áhuga barna á bóklestri.
Dyslexia og tæknin
Hvernig má nýta tæknina fyrir nemendur með dyslexíu?
Spjaldtölvur í starfi með mál og læsi
Upplýsingar um forrit.
Hugmyndir og leiðir.
Mat á stöðu barna, niðurstöður/úrvinnsla
Hvernig lesum við úr niðurstöðum og nýtum þær til gagns?
Lestrarteymi/læsisteymi
Leikskólar, grunnskólar og frístund.
Ráðgjöf við uppbyggingu teyma.
Hlutverk teyma og verklag.
Læsisáætlanir
Leikskólar, grunnskólar og frístund.
Ráðgjöf við uppbyggingu áætlana.
Íslenska sem annað tungumál og virkt tvítyngi
Leikskóli/grunnskóli/frístund
Fræðsla og ráðgjöf sniðin að hverri starfsstöð.
Ráðgjöf vegna þróunarstarfs eða samstarfsverkefna
Þróun samstarfs leikskóla, grunnskóla, milli skólastiga og milli skóla og frístundar. Samfella í námi barna 2 til 16 ára.
Íslenskur málþroski út frá íslenskum rannsóknum
Umræða um íslenskar rannsóknir á málþroska
Málstefna í skóla- og frístundastarfi
Viðhorf og hugmyndir um tungumál
Notkun tungumála og tækifæri í skóla- og frístundastarfi
Aðgerðir
-Stundum, daglega, alltaf
Vænlegar aðferðir til þess að málstefnuvinna hafi áhrif á málumhverfi barna og ungmenna
Beiðni um ráðgjöf
Beiðnir sendist á póstfang MML.
mml(hjá)reykjavik.is