MML getur sérsniðið fræðslu eða ráðgjöf að þörfum hópsins hverju sinni sama. Gott er að taka fram hvers konar ráðgjöf eða fræðslu er óskað eftir.
Hjá Miðju máls og læsis starfa sérfræðingar í máltöku, málþroska, læsi, fjöltyngi, kennslu íslensku sem annars máls, foreldrasamstarfi og fjölmenningalegum starfsháttum. MML getur einnig haft millgöngu um að finna sérfræðing á viðkomandi sviði þegar þekking er ekki til staðar innan MML.
Spurt og svarað um þjónustu MML
Af hverju starfsþróun?
Niðurstaða fræðimanna eins og Kools og Stoll (2016) er sú að hæfni kennara til kennslu kemur ekki af sjálfu sér. Hún er afrakstur skipulegrar starfsþróunar sem byggð er ofan á grunnnám kennara og varir út starfsævina.
Slík starfsþróun á sér ekki stað í tómarúmi heldur í lærdómssamfélagi sem einkennist af sameiginlegri sýn og hverfist um menntun fyrir alla, starfsþróun, teymisvinnu, rannsóknarmenningu, gagnasöfnun, sterkum tengslum við nærsamfélag og kennslufræðilegri forystu.
Hermína Gunnþórsdóttir og Rúnar Sigþórsson. (2025). Nám og kennsla á tuttugustu og fyrstu öld. Í Anna Kristín Sigurðardóttir (ritstjóri). Gæði kennslu: Námstækifæri fyrir alla nemendur. Háskólaútgáfan.
Hvað gerir starfsþróunarteymi?
Starfsþróunarteymi fylgist með nýjustu rannsóknum og miðlar upplýsingum jafnóðum.
Upplýsingum er miðlað með fjölbreyttum hætti:
- heimasíða
- veggspjöld
- ráðgjöf
- fræðsla
- námskeið
- vinnustofur
- lærdómssamfélög
Starfsþróunarteymi vinnur með fagfólki í skóla- og frístundastarfi og ber einnig ábyrgð á því að koma röddum fagfólks á framfæri á viðeigandi vettvangi.
Hvaða þekking er hjá MML?
Hjá MML starfar hópur sérfræðinga með fjöbreytta þekkingu. Hér eru nokkur dæmi:
- málþroski
- læsi
- móttaka nýrra nemenda
- íslenska sem annað tungumál
- menning
- fjöltyngi
- foreldrasamstarf
MML hefur einnig milligöngu um að fá sérfræðinga í tilteknum málaflokkum til að halda erindi, fræðslu eða koma inn í ráðgjöf eftir þörfum.
Hver má óska eftir stuðningi?
Allt starfsfólk í skóla- og frístundastarfi í Reykjavík getur óskað eftir ráðgjöf eða stuðningi vegna áskorana í starfi. Einn starfsmaður getur óskað eftir aðstoð vegna áskorana í starfi. Það þarf samt alltaf að vera í góðri samvinnu við stjórnendur viðkomandi starfsstöðvar.
Hvernig ráðgjöf er í boði?
Ráðgjöf getur verið með ýmsum hætti. Það fer eftir verkefnum, aðstæðum og óskum hvaða leið er valin.
Dæmi um ráðgjöf:
- Upplýsingar í gegnum tölvupóst
- Fjarfundir
- Staðfundir
- Áhorf í kennslu/starfi
- Handleiðsla
- Fræðsla fyrir starfsfólk, hluta starfsfólks, foreldra eða nemendum
- Aðstoð við að finna viðeigandi fræðslu/fyrirlesara
- Stuðningur eða þátttaka í þróunarverkefnum eða lærdómssamfélögum
- Aðstoð við að koma starfsþróunarhugmyndum á framfæri
- Fleira
Hvernig fræðslu er hægt að panta?
Fræðsla á vegum MML er alltaf aðlöguð að óskum starfsstaða og reynt er eftir fremsta megni að sérsníða fræðsluna þannig að tíma allra sé vel varið.
Tímalengd, umfjöllunarefni og útfærsla fræðslu er alltaf stillt í samræmi við óskir starfsstaða.
Gagnlegt er að hafa samband með góðum fyrirvara. Oftast er hægt að bóka fræðslu 4-6 vikur fram í tímann. Stundum er hægt að fá fræðslu með skemmri fyrirvara, jafnvel á síðustu stundu. Það fer eftir því hvort ráðgjafar eru lausir hvort hægt er að hlaupa í slík verkefni.
Dæmi um fræðslur:
- Móttaka nýrra nemenda á Íslandi
- Millimenningarfræðsla
- Kennsla ÍSAT
- Lesskilningur í öllum námsgreinum
- Samskipti þvert á tungumál
- Aðstoð túlka
- Málstefnur 101
- Lestrarkennsla á öllum stigum
- Fordómar, inngilding og fjölbreytileiki
- Að mæta fjöltyngdum nemendahópi
- Málþroski og verkfæri til að styðja börn með DLD
- Íslenska skólakerfið
Athugið að hægt er að óska eftir fræðslu fyrir allt starfsfólk í skóla- og frístundastarfi eða hluta þess. Einnig er hægt að óska eftir fræðslu fyrir foreldra og nemendur. Fræðsla er alltaf aðlöguð að þátttakendum.
Foreldrafélög geta einnig óskað eftir fræðslu frá MML.
Hvaða námskeið er boðið upp á?
MML leggur áherslu á að halda fjölbreytt námskeið á hverju ári og leita fanga víða. Það má alltaf senda ábendingar til MML ef þið hafið sérstakar óskir um námskeið.
Dæmi um námskeið á vegum MML síðustu árin:
- Milli mála – réttindanámskeið, Elín Þöll Þórðardóttir
- Samræðufélagar, Clare Reed, Rannveig Oddsdóttir og Hermína Gunnþórsdóttir
- Rætt til ritunar, Pie Corbet
- 1000 km skólinn, Marco Saverio Loperfido
- Námskeið á vegum Evrópsku tungumálamiðstöðvarinnar
Hvernig panta ég?
Langeinfaldasta leiðin til að óska eftir ráðgjöf eða fræðslu er að senda tölvupóst á mml@reykjavik.is
Það má líka senda póst beint á ráðgjafa.
Hvað gerir MML ekki?
MML veitir ekki aðstoð eða stuðning við:
- einstaklingsmál nemenda
- fjármál eða úthlutanir fjármagns
- lögfræðiþjónustu
- mannauðsmál
- tæknimál
Vissulega skarast mál stundum – en megináhersla MML er á starfsþróun
- Brú milli landaNámskeið fyrir starfsfólk í skóla- og frístundastarfi.
Leiðbeinendur: Brúarsmiðir MML
Tímalengd: 150 mínútur
- Geta nemendur á mið- og unglingastigi verið með málþroskaröskun DLD?Markmiðið með erindinu er að upplýsa og fræða kennara og stjórnendur um málþroskaröskun DLD. Fjallað verður um málþroskaröskun og áhrif á möguleika í námi og lífi. Einnig verður fjallað um birtingarmynd málþroskaröskunar í skólastarfi og hvað hægt er að gera til að styðja við þennan hóp í daglegu starfi.
Tímalengd: 1,5-3 klst eða eftir samkomulagi
Leiðbeinendur: Þóra Sæunn Úlfsdóttir og Sigrún J. Baldursdóttir
- Velkomm tú Æsland - málstefnuvinna í skóla- og frístundastarfiHvað er málstefna og hvernig er hægt að virkja allt starfsfólk, nemendur og foreldra í vinnu með málstefnu? Fræðslan er blanda af fyrirlestri, stuttum verkefnum, leikjum og umræðum. Fræðsluna er hægt að nýta sem fyrsta skref í að hefja vinnu með málstefnu í skóla- eða frístundastarfi.
Nánar um málstefnuvinnu í skóla- og frístundastarfi.
Lengd: 1,5 – 2 klst eða eftir samkomulagi.
Leiðbeinendur: Helga Ágústsdóttir og Ragnheiður V. Sigtryggsdóttir
- Við erum öll ólík, við erum öll einsÁ skóla- og frístundasviði vinna hátt í þúsund starfsmenn með annað/fleiri móðurmál en íslensku. Í þessari
fræðslu verður rætt um mikilvægi þess að stuðla að góðum starfsanda, leiðir til að vinna með
fjölbreyttan starfsmannahóp og hvernig við eflum þann mannauð sem býr í fjölmenningunni.Leiðbeinandi: Dagbjört Ásbjörnsdóttir
- Mál og læsi í grunnskóla, hvað ber árangur?Lesfimi, umskráning, lesskilningur, hlustun, ritun, stafsetning, lestrarvandi, framsögn o.fl.
– Læsi á yngsta- mið- eða unglingastigi. – Læsi í víðum skilningi.
Leiðbeinendur: ráðgjafar MML
- Ráðgjöf brúarsmiða og samræður við einstaka foreldraRáðgjöf og samræður á ensku, filippseysku og pólsku á foreldradegi skólans. Foreldrarnir geta komið
annaðhvort fyrir eða eftir fundinn með umsjónakennara. Boðið er upp á ráðgjöf og samræður um
ýmislegt sem viðkemur námi og frístund barna.
Leiðbeinendur: Brúarsmiðir MML
Tímalengd: 30-60 mín
- Stöðumat nýrra nemendaHagnýtt 4 skipta námskeið fyrir þá kennara og stjórnendur sem annast móttöku nýrra nemenda. Farið er yfir allt efni stöðumatsins, helstu álitaefni og spurningar sem kunna að vakna í ferlinu. Námskeiðið byggir á æfingum í fyrirlögn til þess að þjálfa þátttakendur í notkun stöðumatsins.
Námskeiðið er í fjórum hlutum, alls 4 x 90 mín.
Sjá meira um stöðumat nýrra nemenda á Íslandi.
Leiðbeinendur eru Helga Ágústsdóttir og Ragnheiður V. Sigtryggsdóttir
- Nýr í bekknumHvernig getur allt starfsfólk skólans stutt við farsæla móttöku nýrra nemenda? Farið er yfir helstu áskoranir í móttöku nýrra nemenda á Íslandi. Fjallað er um grunn að foreldrasamstarfi og hvernig hægt er byggja á styrkleikum nemenda samhliða því að tryggja að öll börn og ungmenni upplifi að þau tilheyri. Farið er stuttlega yfir hvað ný námskrá í íslensku sem öðru tungumáli felur í sér og hlutverk allra kennara og starfsfólks í máltöku barna og ungmenna á íslensku. Að lokum eru hagnýt verkfæri og kennsluaðferðir kynntar.
Lengd fræðslu fer eftir samkomulagi, 90 – 120 mín.
Leiðbeinendur eru Helga Ágústsdóttir og Ragnheiður V. Sigtryggsdóttir
- Milli mála og hvað svo?Fræðsla fyrir kennara í grunnskóla um hvernig hægt er að nýta niðurstöður Milli mála í þágu nemenda og skólaþróunar. Um Milli mála prófið.
Tímalengd: 90 mínútur.
Leiðbeinendur eru Helga Ágústsdóttir og Ragnheiður V. Sigtryggsdóttir
- Hvað get ég gert?Fræðsla fyrir kennara í grúnnskóla um hvernig hægt er að mæta fjölbreyttum hópi nemenda í öllu starfi.
Tímalengd: 90 mín
Leiðbeinendur: Ragnheiður V. Sigtryggsdóttir og Sigrún J. Baldursdóttir