Þann 11. janúar 2024 var haldinn fræðslufundur á vegum Miðju máls og læsis. Yfirskrift fundarins var Úti og inni, hvar sem er. Markhópur fræðslunnar voru náttúrufræðikennarar en aðferðirnar sem kynntar voru gagnast öllu fagfólki í skóla- og frístundastarfi.

Glærur frá Þóru Skúladóttur um aðgengilegt lestrarumhverfi

Frekari leiðbeiningar um notkun aðgengilegs lestrarumhverfis (e. immersive reader).

Immersive Reader – leikey.net

Hvernig er hægt að nýta aðgengilegt lestrarumhverfi með texta á íslensku?

  • upplestur – raddlestur á íslensku
  • þýðing stakra orða
  • þýðing lengri texta
  • upplestur – raddlestur á þýðingum
  • lestrarþjálfi

Fyrir hverja er aðgengilegt lestrarumhverfi?

Aðgengilegt lestrarumhverfið er opið öllum og gæti nýst mörgum nemendum og bætt aðgengi margra að texta og upplýsingum

  • til að hlusta á texta lesinn
  • til að æfa framburð eða lestur
  • til að skilja texta ef fólk talar eða les önnur tungumál

Hvað þarf að hafa til þess að geta nýtt aðgengilegt lestrarumhverfi?

Það er nóg að hafa netaðgang og hlekk á skjal sem búið er til í power point eða word.

Hver getur búið til skjöl fyrir nemendur?

Allt starfsfólk í skóla- og frístundastarfi í Reykjavík á að hafa aðgang að office. Það er nóg til þess að búa til skjöl í power point eða word.
Þegar skjölum er deilt til nemenda þarf að búa til hlekk á skjalið og velja að þeir sem hafa fengið hlekkinn geti ekki breytt skjalinu. Sjá leiðbeiningar frá Þóru Skúlad.

Hvað með persónuvernd?

Ef skjölum er útdeilt til nemenda gegnum read only hlekk, þá er það sambærilegt við að deila slóð á vefsíðu til nemenda þar sem engrar innskráningar er krafist af hálfu nemenda.

Hvað er vafri?

Vafri er íslenska orðið yfir browser. Algengir vafrar eru t.d. Chrome, Firefox og Microsoft Edge. Sá síðastnefndi inniheldur einmitt aðgengilegt lestrarumhverfi.