Markmið: að efla orðafora og hugtakaskilning.
Þjálfa nemendur í að:
- Nýta eigin bakgrunnsþekkingu
- Álykta
- Rökstyðja
- Nota orðabækur
- Vinna saman
- Fara eftir leikreglum
Kennsluaðferð: spurningakeppni sem felur í sér samvinnu og upplýsingaleit.
Viðfangsefni: að leita að upplýsingum um orð og setja fram í rituðu og töluðu máli.
Kennslugrein: íslenska, samfélagsfr- og raungreinar.
Gögn: orðabækur, orðaskýringar, skráningarblað, skriffæri.
Undirbúningur kennarans: kennari velur orð, skipta í lið.
Framkvæmd:
- Kennarinn skiptir í lið og lætur hvort lið fá lista af orðum
- Kennarinn spyr liðin spurninga um orðin sem þau hafa fengið
- Nemendur svara spurningunum í 1. Persónu þ.e. þeir ganga inn í hlutverk orðsins
- Þeir sem ekki eru í liði eiga að geta upp á um hvaða orð verið er að spyrja
- Svör liðanna eru metin
- Þeir sem eru með bestu skilgreininguna vinnur
Að taka viðtal við orð
|
Dæmi um spurningar og svör nemenda
|
Ertu karlkyns eða kvenkyns ? · Ég er kvenkynsorð
Ertu mikið notuð í skólastarfi? · Já ég er vinsæl en það þyrftu að vera til fleiri eintök af mér.
Telur þú þig nauðsynlega allsstaðar? · Já ég nýtist í öllu þjóðfélaginu.
Hvað líkar þér ekki og hvers vegna? · Mér líkar ekki þegar fólk misnotar mig.
Hvað þykir þér vænt um? Hvers vegna? · Þegar ég er notuð til að auðvelda fólki nám og vinnu og sem umbun af því að ég get verið svo skemmtileg.
Hverjir eru draumar þínir? · Að sem flestir pikkuðu í mig oft á dag.
Svar: Tölva
|