Markmið:
- að nemendur muni það sem þeir lesa
- að víkka sjónarhorn nemenda á lesefnið
- að auka þekkingu nemenda og lesskilning
Kennsluaðferð: Innlögn, einstaklingsverkefni, samvinna nemenda
Texti: Fræðitexti
Gögn: Límmiðar, stílabók, skriffæri
Undirbúningur kennara; sýnikennsla, finna lestexta einn eða fleiri
Framkvæmd:
- Kennari eða nemendur texta hver fyrir sig, ákveðinn kafla sem kennarinn ákveður.
- Gert er hlé á lestrinum og nemendur beðnir um að hugsa um það sem verið lesið
- Nemendur punkta niður spurningar um efnið á minnismiða
- Haldið áfram að lesa á þennan hátt þar til kennarinn ákveður að lestri sé lokið
- Nemendur ræða viðfangsefnið við aðra sem hafa lesið sama kafla og skiptast á skoðunum og rifja þannig upp
- Nemendur rifja upp inntak textans og skrifa hjá sér
- það þeim finnst mikilvægast að muna
- hvernig samræður hjálpuðu þeim að skila það sem þeir lásu
- spurningu, ef einhverju er enn ósvarað
Að lesa, skrifa, spjalla |
Leiðbeiningar um vinnu nemenda |
Á meðan þú lest
· Lestu nokkrar setningar í einu · Hættu lestrinum og hugsaðu um það sem þú hefur lesið · Skrifaðu hugsanir þínar á minnismiða · Haltu áfram að lesa kaflann á þennan hátt
Þegar þú ert búinn að lesa kaflann · Spjallaðu við aðra um það sem þú hefur lesið · Rifjaðu upp í huganum það sem kom fram í kaflanum · Rifjaðu upp í huganum hvernig aðrir nemendur hjálpuðu þér að skilja það sem þú last · Skrifaðu á minnismiða a. það sem þér finnst mikilvægast að muna b. spurningar, ef þér finnst eitthvað óljóst eða þarft að vita meira um efnið |