Börn þurfa að heyra orð oft til að læra þau örugglega og ,,eigna” sér þau.

Kennarinn þarf að endurtaka orðið í fjölbreyttum aðstæðum og hvetja börnin til hins sama.

Til að orðaforðinn aukist og sé gagnlegur þarf að kenna hann í tengslum við önnur orð og hugmyndir. Þannig dýpkar skilningurinn á orðinu og það eru meiri líkur á að orðið sé notað.

Með því að nota aðferð eins og orðatöfra er hægt að nota sjónrænar aðferðir sem jafnframt fela í sér endurtekningar.

Orðatöfrar eru settir á veggspjald (má einnig vera sem einstaklingsverkefni á litlu blaði). Fyrir miðju er sett mynd af orðinu sem á að vinna með.

Síðan er það að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum:

  • Lýstu hlutnum, hugtakinu
  • Hvernig notum við hlutinn, hugtakið?
  • Hvar geymum/sjáum/notum við hlutinn, hugtakið?
  • Hver hefur séð/líkar/myndi nota/þekkir þennan hlut, hugtak?
  • Eitthvað annað sem ykkur dettur í hug varðandi hlutinn, hugtakið?