Orð í gluggum
Orð í gluggum by Helga Agustsdottir
Heiða talmeinafræðingur, sem rekur fésbókarsíðuna Blaðrað á biðstofum, kom með þá frábæru hugmynd að setja orð í glugga líkt og í vor voru settir bangsar út í glugga.
Við á MML gripum hugmyndina um orðafjársjóðsleitina og settum saman nokkur verkefnablöð sem hægt er að nýta við fjársjóðsleitina.
Möguleikarnir á því að nýta orðin eru nánast óendanlegir og hægt er að útfæra fjársjóðsleitina eftir aldri barna og þroska.
Fyrir foreldra:
- Tölum saman um orðin
- Veltum þeim fyrir okkur
- Vekjum athygli á jákvæðum orðum og hvað falleg orð geta haft mikla þýðingu
- Æfum okkur að nota orðin í setningu
- Samvera og spjall
Fyrir kennara:
- Vinnum með orðaforða á fjölbreyttan máta
- Búum til setningar með orðunum
- Nýtum orðin sem kveikju að ritunarverkefnum
- Söfnum upplýsingum og veltum þeim fyrir okkur
- Ræðum um líðan og vekjum athygli á þeim hugrenningatengslum sem vakna út frá orðum
- Söfnum samheitum
- Nýtum orðin í orðflokkagreiningu
- Vinnum með lýðræði og kjósum til dæmis:
- Frumlegasta orðið
- Skrýtnasta orðið
- Orð vikunnar
- Tengjum orðaforðavinnu við nærumhverfið
Hér er áskorunin á fleiri tungumálum: